Sunnudaginn 23.nóvember, sem er síðasti sunnudagur kirkjuársins verður guðsþjónusta kl 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Kór Fella-og Hólakirkju, undir stjórn Ásdísar Arnalds, leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Ásta Haralds.

Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. Við kíkjum í fjársjóðskistuna, heyrum biblíusögu dagsins,

Sunnudaginn 23.nóvember, sem er síðasti sunnudagur kirkjuársins verður guðsþjónusta kl 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Kór Fella-og Hólakirkju, undir stjórn Ásdísar Arnalds, leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Ásta Haralds.

Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. Við kíkjum í fjársjóðskistuna, heyrum biblíusögu dagsins, syngjum og fáum kirkjubrúðurnar í heimsókn. Öll börn fá límmiða í fjársjóðsbókina fyrir mætingu. Umsjón hafa Sigríður Rún Tryggvadóttir og Ingvi Örn Þorsteinsson.