Það verður boðið upp á útivist, hreyfingu og góðan félagsskap í göngumessum Breiðholtssafnaðanna.  Næstu þrjá sunnudaga sameinast söfnuðirnir í sínum árlegu messum þar sem gengið er til messu frá einni kirkju til annarrar.

Sunnudaginn 5. júní verður safnast saman við Fella- og Hólakirkju kl. 10 árdegis og gengið til Seljakirkju þar sem messa hefst kl. 11.

Sunnudaginn 12. júní verður gengið frá Seljakirkju í Breiðholtskirkju og er sama tímasetning. Lagt af stað kl. 10 og messan byrjar kl. 11.

Sunnudaginn 19. júní verður síðan hringnum lokað með því að ganga frá Breiðholtskirkju kl. 10 til Fella- og Hólakirkju þar sem messa hefst kl. 11.

Göngumessurnar í júní hafa fest sig í sessi og notið mikilla vinsælda.  Breiðholtið býður upp á margar fallegar gönguleiðir og áhugaverða staði þar sem staldrað verður við og þess notið sem fyrir augu ber.

Boðið verður upp á kirkjukaffi í lok hverrar messu og einnig ökuferð til baka að upphafstað göngunnar.