Jóga nidra djúpslökun og fyrirbænastund alla þriðjudaga.

Kristín djákni byrjar stundina með fyrirbæn, hægt er að skrifa bænir í bænabók áður en stundin hefst. María leiðir okkur inn í kyrrðina og hvíldina þar sem andinn vex og umvefur. Gott að koma í hlýrri peysu og hlýjum sokkum og taka jógadýnu með sér. Teppi og koddar á staðnum.

Þessar dásamlegu stundir eru fyrir alla, engin aðgangseyrir.