Skráning í fermingarfræðslu 2017-2018 hefst miðvikudaginn 20. september, en þá eiga væntanleg fermingarbörn að koma í Fella-og Hólakirkju og skrá sig í fermingarfræðslu.

  • Fellaskóli (allir bekkir) koma miðvikudaginn 20. september kl. 15.
  • Hólabrekkuskóli bekkur 81 kemur miðvikudaginn 20. september kl. 15:30.
  • Hólabrekkuskóli bekkur 82 kemur miðvikudaginn 20. september kl. 16.

Þá fer fram skráning og fundinn verður tími fyrir fermingarfræðslu sem hentar öllum. Frekari upplýsingar veita sr. Guðmundur Karl (gudhjor@simnet.is) og sr. Jón Ómar (jon.gunnarsson@kirkjan.is) í síma eða tölvupósti.