Fimmtudaginn kl. 10 verður foreldramorgunn í kirkjunni, að þessu sinni verður tekið þátt í verkefninu Jól í skókassa (www.kfum.is/skokassar). Kristín og Jóhanna hafa umsjón með samverunni og bjóða upp á kaffi, meðlæti og gott samfélag.