Sunnudaginn 12. nóvember verður fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni. Umsjón með stundinni hafa sr. Guðmundur Karl Ágústsson, Pétur Ragnhildarson, Ásta Guðrún Guðmundsdóttir, Kristín Gyða Guðmundsdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir organisti. Kristín Gyða Guðmundsdóttir segir frá starfi Kristniboðsfélagsins í Eþíópíu. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, allir velkomnir.

Kristniboðsdagurinn er næstkomandi sunnudag, 12. nóvember. Rúm 80 ár eru síðan farið var að helga einn sunnudag kirkjuársins kristniboðinu og starfi Kristniboðssambandsins, þá í Kína en síðar meir í Eþíópíu og Keníu og síðan í Japan, Norður-Afríku, Mið-Austurlöndum og víðar.

Biskup hefur alla tíð hvatt presta til að minnast kristniboðsins á þessum degi í guðsþjónustum dagsins og taka samskot til starfsins. Starfsmenn og sjálfboðaliðar á vegum Kristniboðssambandsins hafa víða tekið þátt í helgihaldi og kynnt starfið.

Frá klukkan 14-17 verður kaffisala Kristniboðsfélags karla í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60. Klukkan 17 á sama stað verður samkoma. Þar mun Skúli Svavarsson flytja hugvekju, starfið verður kynnt í máli og myndum og kvennakórinn Ljósbrot syngur þrjú lög. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Kristniboðsalmanakið fyrir árið 2018 er nýkomið út og verður víða dreift ókeypis eftir guðsþjónustur og eins verður það fáanlegt í kirkjum landsins, í Kirkjuhúsinu og á nytjamarkaði Kristniboðssambandsins, Basarnum,  í Austurveri, Háaleitisbraut 58-60.