Fyrirbæn og djúpslökun alla þriðjudaga frá kl. 17:30 – 18:30 Allir velkomnir 
Kristín djákni byrjar stundina með fyrirbæn, síðan tekur Edit jógakennari við og leiðir hópinn inn í kyrrðina og hvíldina þar sem andinn vex og umvefur. Hægt er að skrifa bænir í bænabók áður en stundin hefst. Gott að koma í hlýrri peysu og hlýjum sokkum.

Þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld, ef þig langar að slaka á, losa um spennu og streitu, efla sköpunarkraftinn og bæta svefninn þá eru þetta stundir fyrir þig. Allir velkomnir og engin aðgangseyrir.