Göngumessur Breiðholtssafnaðanna í Júní

Það verður boðið upp á útivist, hreyfingu og góðan félagsskap í göngumessum Breiðholtssafnaðanna.  Næstu þrjá sunnudaga sameinast söfnuðirnir í sínum árlegu messum þar sem gengið er til messu frá einni kirkju til annarrar.

Sunnudaginn 10. júní verður safnast saman við Seljakirkju kl. 10 árdegis og gengið til Fella-og Hólakirkju þar sem messa hefst kl. 11.

Sunnudaginn 17. júní verður gengið frá Fella- og Hólakirkju í Breiðholtskirkju og er sama tímasetning. Lagt af stað kl. 10 og messan byrjar kl. 11.

Sunnudaginn 24. júní verður síðan hringnum lokað með því að ganga frá Breiðholtskirkju kl. 10 til Seljakirkju þar sem messa hefst kl. 11.

Göngumessurnar í júní hafa fest sig í sessi og notið mikilla vinsælda.  Breiðholtið býður upp á margar fallegar gönguleiðir og áhugaverða staði þar sem staldrað verður við og þess notið sem fyrir augu ber.

Boðið verður upp á kirkjukaffi í lok hverrar messu og einnig ökuferð til baka að upphafstað göngunnar.

By |2018-06-05T10:52:09+00:005. júní 2018 | 10:52|

Viltu deila þessari með fleirum?

Go to Top