Dagana 12.-13. nóvember verður fermingarbörnum boðið að fara í fermingarferðalag í Vatnaskóg þar sem dvalið er eina nótt. Í Vatnaskógi er einstaklega góð aðstaða fyrir börnin og hafa fermingarnámskeiðin þar verið ákaflega velheppnuð. Komið er að morgni í Vatnaskóg, gist eina nótt og komið heim um miðjan næsta dag. Brottför verður frá Fella-og Hólakirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 8, en best er að börnin greiði námskeiðsgjaldið við brottför. Námskeiðgjaldið er töluvert niðurgreitt af kirkjunni (kr. 7000) og kostar ferðin því kr. 9.500 fyrir börnin. 

 

Athugið
  • foreldrar verða að skrá börnin í ferðina með því að senda tölvupóst á jon.gunnarsson@kirkjan.is.
  • foreldrar verða að sækja um frí í skóla fyrir börnin sín.

 -Nánari upplýsingar um fermingarferðirnar

Kostnaður / greiðsla:
Ferðin er töluvert niðurgreidd af kirkjunni. Fermingarbörnin greiða kr. 9.500.  Gjaldið á að greiða við brottför

Upplýsingar og samskipti:
Foreldrar/forráðamenn eru beðnir að geta þess bréflega ef gæta þarf sérstaklega að líðan og heilsufari fermingarbarns, fæðuóþol lyf og þess háttar. Allir eiga að fá að njóta dvalarinnar. Við kappkostum því að vera góðir félagar og sýnum tillitsemi í samskiptum. Þeir sem vísvitandi reyna að eyðileggja dvölina fyrir öðrum eru sendir heim á eigin kostnað.

Þátttaka:
Þess er vænst að allir þátttakendur taki þátt í öllum dagskrárliðum nema annað sé sérstaklega tekið fram. Umgengni sýnir innri mann
Við göngum vel um húsnæði og eigur Vatnaskógar. Ef einhver verður vísvitandi valdur að tjóni bætir viðkomandi fyrir það. Óheimilt er að fara inn og út um glugga.

Bátar:

Bátar eru lánaðir ef veður leyfir. Um bátana og vatnið gilda reglur sem þátttakendum ber að kynna sér og virða.
Vatnið. Ef vatnið er ísilagt getur ísinn verið varasamur. Farið aldrei út á ísinn nema með sérstöku leyfi starfsmanna.

Kvöldró:
Mjög mikilvægt er að allir virði auglýsta kvöldró svo að dvalargestir og starfsfólk fái notið nægrar hvíldar.

Athugið að símanúmerið í Vatnaskógi er 433 8959.