Ath. árið 2025 verður fermt á Pálmasunnudegi þann 13. apríl og á Skírdegi þann 17. apríl. 

ENGLISH BELOW

Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar. (Matt. 28.18-20).

 

Fermingarstarf Fella- og Hólakirkju

Ferming er alltaf stór stund í lífi hvers ungmennis og fermingarfræðslan gott veganesti út í lífið. Við leggjum okkur fram um að gera fermingarveturinn eftirminnilegan, þroskandi og innihaldsríkan og verður boðið upp á fjölmarga skemmtilega viðburði líkt og fermingarferð í Vatnaskóg og fermingarmót með öllum fermingarbörnum í Breiðholti.
Fermingarbörn á fermingardaginn

Fermingarbörn á fermingardaginn

Það eru fræðslutímar í hverri viku yfir veturinn og er viðfangsefnið þar fyrst og fremst kærleiksboðskapur Jesú og grunnatriði kristinnar trúar. Einnig er rík áhersla á sjálfstyrkingu, hópefli og lifandi fræðslu. Undanfarin tvö ár hefur fermingarfræðslan verið sameiginleg í Fella- og Hólakirkju og Breiðholtskirkju og það komið sérstaklega vel út.

Orðið ferming merkir að staðfesta og er fermingin staðfesting á skírnarheitinu þar sem fermingarbarn játar að vilja gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns. Fermingin sjálf er hátíðleg athöfn þar sem hvert fermingarbarn stígur fram og krýpur við altarið. Þar fer fermingarbarnið með ritningarorð sem það hefur valið sér og presturinn biður fyrir því og blessar. Undirbúningur fermingarinnar skipar stóran sess í safnaðarstarfi Fella-og Hólakirkju og fræðslustarfi þjóðkirkjunnar. Á hverju ári fermast að jafnaði 60 ungmenni í prestakallinu.  Sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr. Pétur Ragnhildarson hafa umsjón með fermingarstarfi kirkjunnar og veita fúslega upplýsingar í síma eða tölvupósti. 

Fermingarfræðslugjald er kr. 24.000 kr.

Fermingardagar 2025 í Fella- og Hólakirkju verða 13. apríl (pálmasunnudagur) og 17. apríl (skírdagur).

Skráning fer fram hér.

 

ENGLISH:

Confirmation in the Evangelical Lutheran Church of Iceland

The Bible teaches us that baptism is God’s gift to us. Baptism is one of the churches two sacraments and is a symbol of God’s love to us and it marks the beginning of our life as his followers. When parents bring their children to be baptized, they promise to teach and support their child to become Jesus’ disciples. Confirmation classes at a local parish are an important part of this promise.

During confirmation confirmants are given the opportunity to explore faith, life and to affirm their baptismal promise. Confirmation is a place where young people learn about the promises God has made, why God has made them and how this impacts our lives today. In order to understand this, we need to look deeply into the Bible to see how God has worked throughout history and still continues to work today.

Please note that there is a fee for confirmation classes, currently at kr. 24.000 kr.

For further information please contact rev. Jon Omar Gunnarsson (jon.gunnarsson@kirkjan.is) or rev. Pétur Ragnhildarson.