Vegna samkomutakmarkana verður ekki  hefðbundin guðsþjónustu á Allra heilagara messu  eins og venja er.

Þess í stað verður guðsþjónustunni streymt frá facebooksíðu kirkjunnar kl. 11:00. Þar verður minnst látinna og sérstaklega þeirra sem látist hafa á árinu.

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt með því að kveikja á kerti heima til minningar um látna ástvini á meðan horft er á stundina.

Prestar og djákni kirkjunnar annast stundina ásamt organista og öðru tónlistarfólki.

Með kærleikskveðju og bæn um blessun Guðs.