Kæru vinir, enn þurfum við að haga starfi okkar í kirkjunni í samræmi við hertar sóttvarnaaðgerðir því verður þjónusta kirkjunnar næstu tvær vikurnar með sama hætti og verið hefur.
En þrátt fyrir að takmörkun á hefðbundnu starfi þá er kirkjan opinn alla virka daga frá kl. 9 – 16 og öllum velkomið að koma, kveikja á kerti og eiga hljóða stund með sjálfum sér.
Við sendum kirkjunna til ykkar á þessum skrítnu Covid tímum með því að streyma helgistund á sunnudögum kl. 11 og bænastund á þriðjudögum kl. 12. Hægt er að senda bænaefnir á fellaogholakirkja@fellaogholakirkja.is
Fermingabörn sækja guðsþjónustur á netinu og fermingafræðusluna, sunnudagaskólanum er einnig streymt.
Hlúum vel hvert að öðru og stöndum saman. Við minnum á að djákni og prestar bjóða upp á sálgæsluviðtöl og erum alltaf til tals.
Guð blessi ykkur.