Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar Kristjánsdóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð eftir stundina.

Félagsstarf eldri borgara kl. 13 Steinunn Leifsdóttir íþróttafræðingur fræðir okkur um mikilvægi jafnvægisæfinga og kennir einfaldar æfingar. Einnig ætlum við að hafa bleikan dag hjá okkur, hvetjum alla til að mæta í bleiku.

Verið velkomin í gott og gefandi samfélag.