Í ljósi stöðu heimsfaraldurs Kórónuveiru og breyttra sóttvarnarreglna hefur helgihaldinu um jól og áramót í Fella-og Hólakirkju verið aflýst. Á facebooksíðu kirkjunnar verður sendur út aftansöngur kl. 18 á aðfangadag. Einnig verður hægt að nálgast helgihald hátíðana í útvarpi og sjónvarpi yfir hátíðarnar í meira magni en áður.

Starfsfólk og sóknarnefd Fella-og Hólakirkju óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.