Næsta sunnudag verður gengið frá Breiðholtskirkju kl. 10:00 að Seljakirkju þar sem verður guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson þjónar fyrir altari og prédikar og Tómas Guðni organisti leiðir tónlistina ásamt félögum úr kór Seljakirkju.
Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þau sem treysta sér ekki í gönguna geta mætt beint í guðsþjónustuna.
12. júní er gengið frá Fella- og Hólakirkju að Breiðholtskirkju.
19. júní er gengið frá Breiðholtskirkju að Seljakirkju.
26. júní er gengið frá Seljakirkju að Fella- og Hólakirkju.

Gönguhópurinn síðasta sunnudag. Myndina tók Kristín Sigurðardóttir.