Næsta sunnudag, 21. ágúst, kl. 11:00, verður mikil hátíð í Breiðholtsprestakalli þegar sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr. Pétur Ragnhildarson verða settir í embætti í prestakallinu.

Sr. Bryndís Malla prófastur setur sr. Jón Ómar inn sem sóknarprest og sr. Pétur sem prest og þjóna þau öll fyrir altari auk sr. Magnúsar Björns. Kór Fella- og Hólakirkju syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Grímur Helgason leikur á klarinett og Örn Magnússon, organisti í Breiðholtskirkju, leikur eftirspil.

Að stundinni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.