Jólaball Fella- og Hólakirkju fer fram næsta sunnudag kl. 17:00.

Stundin hefst inn í kirkju þar sem sr. Pétur Ragnhildarson segir frá vitringunum í jólaguðspjallinu og kveikt er á þriðja kertinu á aðventukransinum.

Eftir það er haldið inn í safnaðarheimili þar sem Arnhildur organisti stýrir söng og dansi í kringum jólatréð. Aldrei að vita nema að rauðklæddur gestur láti sjá sig.

Verið hjartanlega velkomin á jólaball.