Skírdagur 6. apríl

Fermingarmessa kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr. Pétur Ragnhildarson þjóna. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur, organista og Matthías Stefánsson leikur á fiðlu.

Föstudagurinn langi 7. apríl

Stabat Mater Dolorosa – María stóð við krossinn kl. 14. Kristín R. Sigurðardóttir og Svava Kristín Ingólfsdóttir flytja verkið ásamt félögum úr kór Fella-og Hólakirkju. Arnhildur Valgarðsdóttir leikur á píanó og Matthías Stefánsson á fiðlu. Sr. Jón Ómar Gunnarsson leiðir stundina. Enginn aðgangseyrir – allir velkomnir.

Páskadagur – 9. apríl

Hátíðarguðsþjónusta kl. 9. Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Xu Wen syngur einsöng. Að guðsþjónustunni lokinni verður öllum boðið til morgunverðar í safnaðarsal kirkjunnar. Páskaeggjaleit í sunnudagaskólanum á sama tíma í umsjá Nönnu æskulýðsfulltrúa.