Á pálmasunnudag, þann 5. apríl verður fermingarmessa í Hólabrekkusókn kl. 11.00 og í Fellasókn kl. 14.00. Sunnudagaskóli er kl. 11.00.

Fermingarmessa í Hólabrekkusókn kl. 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Fermingarmessa í Fellasókn kl. 14.00. Prestur er sr. Svavar Stefánsson.

Við báðar athafnir syngur kór Fella-og Hólakirkju og leiðir almennan safnaðarsöng. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir, kantor.

Nöfn fermingabarnanna er að finna hér.

Á pálmasunnudag verður jafnframt sunnudagaskóli. Biblíusaga, kirkjubrúður og páskaföndur. Umsjón hafa Sigríður Rún Tryggvadóttir og Ingvi Örn Þorsteinsson.