Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Ester Viktorsdóttir, píanóleikari, leikur á hljóðfæri en kór kirkjunnar leiðir söng.

Að beiðni biskups Íslands verður tekið við samskotum til styrktar innlendri aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.

Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Ragnhildar og Heiðrúnar. Efni dagsins er: Íþróttir og fjör!