Næsta sunnudag er Krílamessa kl.11.Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Mikill söngur, skemmtileg dagskrá og vöfflukaffi.

Kynning á tónlistarnámskeiði kirkjunnar  í umsjá Guðnýjar Einarsdóttur  kantors. Listasmiðjan Litróf tekur þátt í guðsþjónustunni. Stutt hugleiðing í umsjá listasmiðjunnar.   Eftir guðsþjónustuna verður vöfflukaffi í safnaðarheimili kirkjunnar til styrktar Litrófsins, 300 kr. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Fyllum kirkjuna af fólki og eigum góða stund saman í Fella- og Hólakirkju

Her má lesa meira um Krílahópinn