Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina og fær aðstoð viðstaddra. Guðspjall dagsins .. 

 

Guðspjall dagsins er úr  5. kafla Jóhannesarguðspjalls, versin 24-27 og fjallar um dóminn. Það er fróðlegt að skoða þann texta í ljósi niðurstöðunnar úr Þjóðfundinum sem var um s.l. helgi. Hvaða gildi tileinkum við okkur og hvernig koma þau saman við hin hinsta dóm?

Hér geturðu flétt upp textann.

Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar og  Þóru Bjargar.  Verkefnið er að þessu sinni Myndabiblían mín.

Verið velkomin öll!