Næsti sunnudagur er annar sunnudagur í föstu. Guðsþjónusta kl.11. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kantors. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar D. Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. ,, Gróðursetjum fræ”. Fjölbreytt og skemmtilega dagskrá. Verið innilega velkomin.
Guðspjall dagsins er úr Matteusarguðspjalli 15.21-28

,,Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda. En Jesús svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: „Láttu hana fara, hún eltir okkur með hrópum.

Jesús mælti: „Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.

Konan kom, laut honum og sagði: „Drottinn, hjálpa þú mér!“

Hann svaraði: „Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.

Hún sagði: „Satt er það, Drottinn, þó eta hundarnir mola þá sem falla af borðum húsbænda þeirra.“

Þá mælti Jesús við hana: „Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.“ Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu”