Organisti Fella- og Hólakirkju verður með tónleika í tónleikaröðinni „Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2010“. Tónleikarnir verða laugardaginn 24. júlí kl. 12 og sunnudaginn 25. júlí kl. 17. Glæsileg orgelverk verða á efnisskránni og ekki er efi að Guðný mun standa vel fyrir sínu. Það væri gaman ef við héðan úr Fella- og Hólahverfum myndum fjölmenna á þessa áhugaverðu tónleika.