Líkt og undanfarin ár verður ekkert reglulegt helgihald í júlí í kirkjunni. Prestur er þó við störf þennan tíma og sinnir þeim verkefnum sem um er beðið og kirkjan opin fyrir athöfnum. Bent er á helgihald í nágrannakirkjum þennan tíma. Næsta guðsþjónusta verður sunnudagskvöldið 8. ágúst kl. 20. Prestur sr. Svavar Stefánsson.