Fjölskylduguðsþjónusta næsta sunnudag, 3.október kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Listasmiðjan Litróf leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Undirleik annnast Guðný Einarsdóttir organisti. Þórey Dögg Jónsdóttir og Þóra Sigurðardóttir leiða stundina. Mikil og fjölbreytt dagskrá við allra hæfi. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.