Guðsþjónusta kl.11.Biskup Íslands Herra Karl Sigurbjörnsson heimsækir söfnuðinn og prédikar.Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sr. Svavar Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni þjóna fyrir altari.Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista.Einsöng syngur Ásdís Arnalds. Á trompet leika Jón Hafsteinn Guðmundsson og Jón Óskar Gunnlaugsson. Listasmiðjan Litróf syngur undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Sunnudagskóli á sama tíma.,,Búum til nammi“.Mikill söngur og skemmtileg dagskrá. Umsjón Þóra Sigurðardóttir og Daría Rutkova. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.