Ævintýralitróf er félagsskapur fyrir alla krakka á aldrinum 6 – 9 ára í Fella- og Hólahverfum. 
Á miðvikudögum frá kl. 15:00-16:00 eru fundir fyrir 6-7 ára börn og á fimmtudögum frá kl. 15:00-16:00 fyrir 8-9 ára börnin. Á ævintýralitrófs-fundum fáum við að heyra um líf Jesús, við syngjum saman, förum í leiki og gerum margt ævintýralega skemmtilegt 🙂
Allir 6 – 9 ára krakkar eru hjartanlega velkomnir.
Þau börn sem eru í Vinafelli, Æskufelli og Álfheimum fá fylgd í kirkjuna og til baka í skólann þegar samveru er lokið.
Foreldrar sem vilja leyfa börnunum sínum að vera með vinsamlega sendið þessar upplýsingar með barninu í fyrsta skiptið. SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ