Jólatréskemmtun kl.11. Skemmtunin hefst með helgistund í kirkjunni og síðan er dansað í kringum jólatréð. Hver veit nema gestir komi úr fjöllunum ? Guðsþjónusta kl.14. Prestar og djákni kirkjunnar þjóna. Jón Ómar Gunnarsson prédikar.Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Organisti Ólafur W.Finnson. Félagar úr kirkjustarfi eldri borgara tendra kerti á aðventukransinum.Kaffi og meðlæti. Verð öll innilega velkomin.