Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. Efni dagsins er ,,Búum til nælur“.

Kl. 14 verður haldin guðsþjónusta á vegum Dýrfirðingafélagsins. Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Organisti er Guðbjörg Leifsdóttir. Á eftir verður kaffisala í safnaðarheimili kirkjunnar í tilefni hins árlega kaffidags Dýrfirðingafélagsins.