Guðsþjónusta kl.11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Á sama tíma er sunnudagaskóli í umsjá Þóru Sigurðardóttur og Daríu Rudkovu. Þar verður föndrað páskaföndur. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin.