Sunnudaginn 5. júní verður gengið frá Seljakirkju kl. 19:00 til kvöldmessu í Breiðholtskirkju sem byrjar kl. 20:00.  Ekið verður með göngufólk aftur að Seljakirkju þegar allir hafa þegið hressingu eftir messuna. Gangan er tilvalið tækifæri til að sameina góða hreyfingu, andlega næringu og góðan félagsskap.