Miðvikudaginn 8. júní kl. 20 mun tónleikaröðin Sumartónar í Elliðaárdal hefja göngu sína með tónleikum Kórs Fella- og Hólakirkju. Kórinn flytur Aesop´s Fables eftir Bob Chilcott við undirleik Guðríðar St. Sigurðardóttur. Einnig munu einsöngvarar úr röðum kórfélaga flytja þekktar, ítalskar aríur og íslensk einsöngslög. Að lokum mun kórinn endurtaka hluta af minningartónleikum um hjónin Magneu Þorkelsdóttur og Sigurbjörn Einarsson sem fluttir voru fyrr í vetur. Stjórnandi kórsins er Guðný Einarsdóttir, organisti. Aðgangseyrir er 1500 kr. og verða miðar seldir við innganginn. Allar nánari upplýsingar um tónleikana og tónleikaröðina má finna hér