Sunnudagur 19.júni
Þriðja göngumessa í samstarfi kirknanna í Breiðholti verður næsta sunnudag. Gengið verður frá Breiðholtskirkju klukkan 19 að Fella- og Hólakirkju þar sem guðsþjónusta hefst þar kl.20.
Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Boðið verður upp á kaffi eftir stundina í safnaðarheimili kirkjunnar. Verið innilega velkomin