Allra heilagra Messa sunnudaginn 6.nóvember kl.11. Þá verður látinna minnst. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Svavari Stefánssyni. Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Mikill söngur og fjölbreytt dagskrá. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.