Guðsþjónusta sunnudaginn 13.nóvember kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Bjarni Gíslason kristniboði prédikar. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Bangsa-og brúðudagur í sunnudagaskólanum.

Æskulýðsmessa kl.20. Um er að ræða samstarfsverkefni kirknanna í Breiðholti. Fermingarbörn, unglingar og foreldrar innilega velkomnir. Mikill söngur og fjölbreytt dagskrá.

Verið innilega velkomin.