Sunnudaginn 11. mars kl. 12:15 -12:45 verða orgeltónleikar í kirkjunni. Guðný Einarsdóttir, organisti flytur stytta útgáfu af Myndum á sýningu eftir Modest Mussorgsky og mun Guðmundur Hafsteinsson kynna tónlistina. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir, ungir sem aldnir!

Í vetur hefur Guðný reglulega haldið örtónleika á orgelið eftir guðsþjónustu á sunnudögum í tilefni af því að í vor er orgel kirkjunnar 20 ára. Tónleikarnir á sunnudaginn eru fimmtu og síðustu örtónleikar vetrarins.