Sumarguðsþjónusta á Sumardaginn fyrsta kl.11. Sannkölluð tónlistarveisla í Fella- og Hólakirkju. Kirkjukórinn syngur meðal annars kafla úr Messu í G-dúr eftir Franz Schubert og Faðir vor eftir Joseph Rheinberger undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Undirleik á orgel annast Björn Steinar Solbergsson. Einsöngvari er Eyrún Ósk Ingólfsdóttir sópransöngkona. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni flytur hugleiðingu. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sr. Svavar Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

Verið innilega velkomin að fagna sumri saman á Sumardaginn fyrsta í Fella- og Hólakirkju.