Sunnudaginn 22.apríl verður guðsþjónusta kl.11. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista.  Tónlistarnemar annast tónlistarflutning.

Á sama tíma er sunnudagaskóli í safnaðarheimili kirkjunnar. Guðrún Hrönn og Jóhanna taka á móti börnunum í búningapartýi.

Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju 🙂