,,Göngumessa“ í Fella- og Hólakirkju. Um er að ræða samstarfsverkefni á milli kirknanna í Breiðholti. Safnast verður saman við Fella- og Hólakirkju kl.19 og gengið um hverfið. Að lokinni göngu verður helgistund kl.20 í Fella- og Hólakirkju. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Kirkjuvörður og  meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

Verið öll innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju : )