Sunnudagskvöldið 19.ágúst verður kvöldguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju. Guðsþjónustan hefst kl.20. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Tónlistarnemendur Ólafs Elíassonar, Ingibjörg Sól Ingólfsdóttir og Hróbjartur Böðvarsson, munu spila og annast undirleik í þessari kvöldguðsþjónustu. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Verið innilega velkomin.