Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Stúlkur úr listasmiðjunni Litróf syngja, dansa og leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Undirleik annast Íris Andrésdóttir og Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Sunnudagaskólakennararnir, Pétur Ragnhildarson og Hreinn Pálsson, leiða stundina og halda uppi fjörinu. Mikill söngur, fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju