Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli orgelsins í Fella- og Hólakirkju mun Guðný Einarsdóttir og Lenka Mátéová halda afmælisorgeltónleika þann 20. október nk. kl. 17. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, leikin verða ýmis einleiksverk en einnig munu þær spila fjórhent og ferfætt á orgelið, m.a. útsetningu af afmælissöngnum og valsa eftir Johann Strauss fyrir fjóra fætur. Til að áheyrendur fái notið tónleikanna sem best verður myndatökumaður á staðnum og vídjómynd af handa- og fótafimi orgelleikaranna varpað á skjá niðri í kirkjunni! Aðgangur er ókeypis í þessa afmælisorgeltónleikaveisluog allir hjartanlega velkomnir.