Lokahátíð sunnudagaskólans á þessum vetri er á sumardaginn fyrsta kl.11. Sr.Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Svavar Stefánsson.Litrófið leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Organisti Guðný Einarsdóttir. Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson leiða stundina og halda uppi fjörinu. Bjarki Rafn Andrésson leikur einleik á orgel. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

Eftir stundina verður boðið upp á pylsur og safa. Verið innilega velkomin 🙂