Gleðilegt ár.
Það er hefðbundin þriðjudagsdagskrá hjá okkur. Kyrrðarstund kl. 12 og súpa kl. 12.30.
Kl. 13 hefst kirkjustarf aldraðra þar sem verður spjallað um nýjar bækur. Spil og handavinna á sínum stað og að sjálfsögðu framhaldssagan, Bláu trén í Friðheimum.
Fyrirbænastund í lokin.
Láttu sjá þig.