Þann 20. janúar hefst nýtt Krílasálmanámskeið í kirkjunni. Krílasálmar er skemmtilegt tónlistarnámskeið fyrir börn frá u.þ.b. 3 – 18 mánaða og foreldra þeirra. Umsjónarmaður er Guðný Einarsdóttir organisti. Námskeiðið er sex skipti, frá 20. janúar til 24. febrúar og kostar 4000 kr. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið gudny.organisti@gmail.com. Athugið að hámarksfjöldi á námskeiðið er 10 börn. Hér má lesa meira um Krílasálma.