Biblíudagurinn verður haldinn hátíðlegur 23. febrúar. Þá verður útvarpað guðsþjónustu frá Fella- og Hólakirkju þar sem nýráðinn framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, prédikar. Séra Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir en kvennakórinn Vox Feminae syngur. Benedikta Waage og Ólöf Margrét Snorradóttir lesa ritningartexta dagsins. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

Sunnudagaskólinn er á sama tíma í umsjá Hreins Pálssonar og Péturs Ragnhildarsonar. Saga, söngur og mikil gleði að vanda og ekki má gleyma Viktori sem verður með sögustund.

Í tilefni konudagsins verður vöfflukaffi að lokinni guðsþjónustu sem karlmenn úr sóknunum sjá um.
Allir hjartanlega velkomnir.

Hið íslenska Biblíufélag var stofnað þann 10. júlí árið 1815 og er því elsta starfandi félag á Íslandi. Nánari upplýsingar um félagið má nálgast á heimasíðu þess, biblian.is