Fimmtudaginn 27. febrúar kemur hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni Efra-Breiðholti í heimsókn.

Foreldramorgnar eru samverur foreldra og barna og henta vel heimavinnandi foreldrum og foreldrum í fæðingarorlofi. Kristín og Jóhanna taka vel á móti öllum, alltaf heitt á könnunni.