Föstudaginn 28. mars kl. 17 verða haldnir orgeltónleikar í Fella- og Hólakirkju þar sem fram koma gestir frá Noregi, organistinn Björn Vidar Ulvedalen ásamt nemendum sínum á aldrinum 7 – 20 ára. Einnig koma þrír ungir orgelnemar frá Íslandi fram. Björn Vidar er frumkvöðull á sviði orgelkennslu barna, hefur samið námsefni og rekur skóla í Noregi þar sem börnum er kennt á orgel. Aðgangur á tónleikana er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!