Gleðilega páska!

Hátíðarguðsþjónusta kl. 08. Séra Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Guðmundi Karli Ágústssyni. Ólöf Margrét Snorradóttir les ritningarlestra dagsins. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Sólveigar Önnu Aradóttur organista.

Sunnudagaskóli á sama tíma. Hreinn og Pétur stjórna páskaeggjaleit.

Boðið er upp á morgunmat í safnaðarheimili að lokinni hátíðarguðsþjónustu. Meðhjálparar og kirkjuverðir eru Kristín Ingólfsdóttir og Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

Verið hjartanlega velkomin í kirkjuna!